Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Snertilausar greiðslur með snjallúrinu þínu

Þú getur borgað snertilaust með snjallúrum frá Garmin og Fitbit um allan heim í þeim posum sem bjóða snertilausa virkni.


Með snjallúrum frá Garmin og Fitbit getur þú greitt með kreditkortunum þínum snertilaust um allan heim í þeim posum sem bjóða snertilausa virkni.

Þegar þú kemur að posa leggur þú úrið að posanum.

Snertilausar greiðslur með snjallúrum verða fyrst um sinn aðeins í boði fyrir handhafa kreditkorta og fyrirframgreiddra korta Íslandsbanka.

Þú virkjar kortið í Garmin Connect eða Fitbit appinu.

Garmin

  1. Þegar Garmin Connect appið er opnað, smellir þú á úrið sem vilt vilt virkja og velur Garmin Pay og velur þér lykilorð.
  2. Næst velur þú Mastercard og slærð inn korta- og persónuupplýsingar.
  3. Að lokum samþykkir þú skilmálana og færð sendan kóða á símanúmer sem þú hefur skráð hjá okkur. Kóðann slærð þú inn í appið og birtist þá mynd af þínu korti í appinu.

Linkur á myndband með leiðbeiningar (á ensku)

Fitbit

  1. Þegar Fitbit appið er opnað, smellir þú á úrið sem vilt vilt virkja og velur Fitbit veskið.
  2. Veldu þér PIN númer fyrir greiðslur með úrinu. PIN númerið er notað þegar veskið í úrinu er opnað.
  3. Næst velur þú Mastercard og slærð inn korta- og persónuupplýsingar.
  4. Að lokum samþykkir þú skilmálana og færð sendan kóða á símanúmer sem þú hefur skráð hjá okkur. Kóðann slærð þú inn í appið og birtist þá mynd af þínu korti í appinu.

Linkur á myndband með leiðbeiningar (á ensku)

Öryggi greiðslna með snjalltækjum

Greiðslur með símanum, úri eða öðrum snjalltækjum eru ávallt tengdar undirliggjandi greiðslukorti. Öll greiðslukort Íslandsbanka eru gefin út með heimild Mastercard. Snertilausar greiðslur með snjalltækjum eru einnig þróaðar í samvinnu við Mastercard og fylgja öllum þeim öryggiskröfum sem fyrirtækið setur. 
Þegar kort er virkjað fyrir snertilausar greiðslur verður til sýndarnúmer (token) sem snjalltækið notar. Hið eiginlega kortanúmer er því ekki notað þegar greitt er, sem eykur öryggi snertilausra greiðslna.
Til þess að geta notað síma sem greiðsluleið er nauðsynlegt að notendur noti viðeigandi öryggisstillingar til þess að aflæsa símtækinu, t.d. PIN númer eða fingrafar. Þegar um er að ræða greiðsluleið frá öðrum aðilum, t.d. Garmin og Fitbit er nauðsynlegt að fylgja þeim öryggisþáttum við sem krafist er við auðkenningu og staðfestingu á greiðslu. 
Þar sem auðkenningarleið snjalltækis er nú nýtt sem staðfesting á greiðslu er mikilvægt að notendur gæti vel að sú auðkenningarleið sé ekki aðgengileg öðrum en notandanum sjálfum.