Hver er líftími fyrirtækja, hverjir eru stofnendur þeirra og hvernig stöndum við í alþjóðlegum samanburði?
Þetta er meðal þess sem rætt er um í nýrri skýrslu sem Reykjavík economics vann fyrir Íslandsbanka. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er:
- Helmingi færri konur en karlar hafa stofnað fyrirtæki á síðustu 15 árum. Hlutfall þeirra hefur þó hækkað nokkuð.
- Frá árinu 2009 hefur rúmlega fimmtungur þeirra fyrirtækja sem voru stofnuð það ár orðið gjaldþrota.
- Rannsóknir og þróun sem hlutdeild af vergri landsframleiðslu eru hér yfir meðaltali Evrópusambandsþjóða, en talsvert lægri en í Svíþjóð og Danmörku.
- Innlendir aðilar hafa skráð ríflega 7.500 vörumerki hér á landi. Bandarískir aðilar hafa hins vegar skráð 11.000.
- Einkaleyfisskráningar eru nokkuð í sókn en við stöndum þó langt að baki Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi í þeim efnum.
- Einungis 18% útflutningstekna eiga uppruna sinn utan sjávarútvegs, útflutnings iðnaðarvara og ferðaþjónustu. Mikilvægt er að hækka það hlutfall.