Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007.
Skúli Hrafn kemur til Íslandssjóða frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), þar sem hann hefur frá árinu 2022 gegnt starfi sjóðstjóra innlendra verðbréfa hjá stærsta lífeyrissjóði landsins.
Áður starfaði Skúli Hrafn hjá Kviku eignastýringu á árunum 2015 til 2022, þar sem hann leiddi meðal annars hlutabréfastýringu félagsins og var í forsvari fyrir fagfjárfestasjóði. Þar á undan var hann forstöðumaður eigin viðskipta hjá MP banka og hóf feril sinn hjá Saga Capital fjárfestingarbanka árið 2007. Skúli Hrafn hefur jafnframt setið í fjárfestinga- og hagsmunaráðum ýmissa rekstrarfélaga.
Skúli Hrafn lauk námi í hagfræði með lögfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands árið 2007 og hlaut löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2011. Hann mun hefja störf hjá Íslandssjóðum í lok september.

