Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag, stytta boðleiðir og efla þannig þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Skipulagsbreytingunum er ætlað að styrkja bankann í áframhaldandi sókn, þar sem stafræn þróun, gervigreind og breyttar kröfur viðskiptavina kalla á nýja nálgun í rekstri og þjónustu.
Nýtt skipurit bankans tekur gildi í dag. Stofnað hefur verið nýtt svið, Stefnumótun og menning, sem mun stuðla að auknu samstarfi á milli stoðsviða og mótun fyrirtækjamenningar bankans. Undir sviðið mun falla lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild og stefnumótun og sjálfbærni. Þá hafa verið gerðar breytingar á nöfnum viðskiptaeininga bankans sem bera heitin Einstaklingssvið, Fyrirtækjasvið og Fjárfestingarbankasvið.
Með breytingunum er stjórnendum fækkað um 15% í heild á árinu og forstöðumönnum um 20%. Þá fækkar aðalnefndum innan bankans úr ellefu í fjórar.
Starfsfólki fækkar um rúmlega 20 við breytingar dagsins og gætir fækkunar helst í stoðeiningum bankans. Í heild mun stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu. Þar er tekið tillit til fækkunar vegna snemmloka sökum aldurs sem greint var frá í ársuppgjöri 2025. Íslandsbanki leggur áherslu á að staðið sé af ábyrgð og virðingu að breytingum sem þessum og að hlúið sé að því starfsfólki sem þær ná til.
Með þessum breytingum heldur Íslandsbanki áfram að þróa rekstur sinn, styrkja samkeppnishæfni og tryggja að skipulag og kostnaðargrunnur styðji við langtíma árangur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.

