Sjóðir Vanguard eru komnir í Íslandsbankaappið. Kaupin fara fram beint í appinu og krefjast hvorki milliliða né heimsóknar í útibú.
Í boði eru vísitölusjóðir, bæði hlutabréfa- og skuldabréfasjóðir, sem fylgja þróun markaða í heild í stað þess að leggja áherslu á einstök félög. Þegar þú kaupir í slíkum sjóði eignast þú hlutdeild í fjölda félaga eða skuldabréfa. Vanguard er meðal stærstu sjóðastýringarfyrirtækja heims og setti fyrsta vísitölusjóðinn fyrir almenning á markað árið 1976.
Nýja viðbótin í Íslandsbankaappinu byggir á löngu samstarfi okkar við Vanguard. Það hófst fyrir tæpum þremur áratugum þegar við urðum fyrsti samstarfsaðili félagsins utan Bandaríkjanna.

