Samstarf Íslandsbanka og VÍS hafið

Í dag hófst formlega samstarf Íslandsbanka og VÍS þar sem sameiginlegir viðskiptavinir munu njóta enn betri fríðinda og þjónustu í viðskiptum við félögin tvö.


Viðskiptavinir með virkt kort hjá Íslandsbanka og heimilistryggingu hjá VÍS tryggja sér demantskjör í vildarkerfi VÍS ásamt sérsniðnum tilboðum í Fríðu, fríðindakerfi Íslandsbanka. Með þessu fá viðskiptavinir enn betri yfirsýn yfir fjármálin þar sem tryggingar VÍS munu birtast í appi Íslandsbanka en þar verður einnig hægt að óska eftir tilboði í tryggingar. 

Sem hluti af samstarfinu verða ráðgjafar VÍS staðsettir í þremur útibúum Íslandsbanka frá og með 6. maí, í Norðurturni, Suðurlandsbraut og Dalbraut 1 á Akranesi. 

Frekari upplýsingar um samstarfið má nálgast hér.   

Þetta eru sannarlega tímamót í þjónustuframboðinu hjá okkur þar sem viðskiptavinir geta nú séð tryggingar og fjármál undir einum hatti í Íslandsbankaappinu. Samstarfið er mikilvægur hlekkur í þeirri stefnu okkar að efla fjárhagslegu heilsu okkar viðskiptavina og við erum spennt að sjá boltann rúlla af stað af krafti

Jón Guðni Ómarsson
Bankastjóri 

Við erum mjög spennt að hefja þetta samstarf við Íslandsbanka. Markmiðið er að bæta upplifun viðskiptavina okkar og skapa aukinn ávinning og förum við nú í loftið með afrakstur mikillar vinnu síðustu mánaða. Með því að sameina krafta okkar gerum við viðskiptavinum okkar núna kleift að fá bæði fjármála- og tryggingaþjónustu á einum stað

Guðný Helga Herbertsdóttir
Forstjóri VÍS