Fasteignasafnið telur 11 fasteignir og er heildarstærð safnsins 25.200 m². Fasteignirnar eru allar á höfuðborgarsvæðinu og innifela meðal annars hótel, sendiráð, heilsugæslu og skrifstofur. Meðal helstu eigna í fasteignasafninu eru Hverfisgata 103, sem hýsir 100 herbergja hótel, skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 25, sendiráð að Laufásvegi 31, verslunar- og þjónustuhúsnæði við Bernhöftstorfu í miðbæ Reykjavíkur, heilsugæslu í Glæsibæ auk annarra eigna.
Kaupverð fasteignanna er 13.150 m.kr. og eru viðskiptin fullfjármögnuð með útgáfu hluta- og skuldabréfa til seljanda. Viðskiptin eru háð ákveðnum skilyrðum, þ.m.t. ástands- og áreiðanleikakönnun fasteignanna, samþykki Samkeppniseftirlitsins, breytingar á skilmálum skuldabréfa í skuldabréfaflokki FIF 13 01 og samþykki endanlegs kaupsamnings aukins meirihluta hluthafafundar FÍ Eignarhaldsfélags slhf. Áætlað er að öllum fyrirvörum verði aflétt á fyrsta ársfjórðungi 2026.
Kaupverðið verður greitt annars vegar með útgáfu nýs hlutafjár í Kaldalóni hf. og hins vegar með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki KALD 220437 að nafnvirði 7.232,5 m.kr.
FÍ Eignarhaldsfélag, móðurfélag FÍ Fasteignafélags, er í meirihlutaeigu innlendra lífeyrissjóða sem með þessum viðskiptum bætast í hóp hluthafa Kaldalóns og verða í hópi eigenda skuldabréfa útgefinna af félaginu.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með söluferlinu og lögfræðiráðgjöf var í höndum BBA legal.
