Reitun veitir Íslandsbanka framúrskarandi einkunn í sjálfbærni

Bankinn viðheldur A3 einkunn sinni í flokki famúrskarandi fyrirtækja á sviði sjálfbærni.


Íslandsbanki fær framúrskarandi einkunn í UFS-mati Reitunar og er í flokki A3. Matið byggir á árangri í tengslum við þrjá meginþætti sjálfbærni, þ.e.  umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti (UFS-þætti).

Bankinn fær 89 stig af 100 mögulegum og er yfir meðaltal í öllum flokkum í samanburði við aðra innlenda útgefendur sem hafa farið í gegnum UFS mat hjá Reitun. Mest gætir hækkunar í stjórnarháttum á milli ára hjá bankanum. Í umsögn Reitunar kemur fram að bankinn hafi í lengri tíma sinnt sjálfbærnimálum vel, sé með sterka umhverfisstjórnun og eigi virk tengsl við samfélagið.

 

Í meðfylgjandi skjali má sjá yfirlit yfir helstu niðurstöður Reitunar