Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Reitir fasteignafélag hf. – Opinn rafrænn kynningarfundur

Reitir fasteignafélag býður til opins kynningarfundar á föstudaginn 16. október 2020 kl. 14:00 í tengslum við forgangsréttar- og almennt útboð á nýjum hlutum í félaginu sem fer fram dagana 20. og 21. október og fyrirhugaðrar töku hinna nýju hluta til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands.


Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi sem nálgast má á vef Reita, www.reitir.is/hlutafjarutbod/kynningarfundur . Upptaka af fundinum verður ekki aðgengileg eftir að honum lýkur.

Um útboðið
Hlutafjárhækkunin mun fara fram á grundvelli almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum þar sem hluthafar Reita njóta forgangs að hinum nýju hlutum, en að forgangsrétti frágengnum verða hinir nýju hlutir boðnir almennum fjárfestum í almennu útboði sem fram fer samhliða forgangsréttarútboðinu.

  • Áskriftir skulu skráðar rafrænt á sérstöku formi á www.arctica.is/reitir-utbod
  • Boðnir verða til sölu hlutir að nafnvirði 120.000.000 kr.
  • Útboðsgengi hinna nýju hluta er 43 kr. á hlut.
  • Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu.
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr.
  • Forgangsréttarhafar að hinum nýju hlutum Reita eru þeir aðilar sem skráðir eru hluthafar Reita í hlutaskrá félagsins í lok dags 19. október 2020 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín samkvæmt reglum útboðsins.
  • Tekið verður við áskriftum frá kl. 10:00 (GMT), þann 20. október 2020 til kl 16:00 (GMT) þann 21. október 2020.
  • Fjárfestar þurfa að eiga eða stofna vörslureikning. Hægt er að stofna vörslureikning hjá Íslandsbanka.
  • Áætlað er að niðurstöður útboðsins verði tilkynntar 21. október 2020.
  • Áætlaður eindagi kaupverðs í útboðinu er 28. október 2020.
  • Stefnt er að afhendingu og töku nýrra hluta til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq eins fljótt og auðið er eftir hækkun hlutafjár og útgáfu hlutabréfa hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð. Áætlað er að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta eigi síðar en 16. nóvember 2020.

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er skuldbindandi. Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutum í Reitum fasteignafélagi eru fjárfestar hvattir til að kynna sér allar upplýsingar um Reiti fasteignafélag og útboðið á vef Reita, www.reitir.is/hlutafjarutbod .