Orkulandið Ísland: Fortíð, nútíð og framtíð

Farið er yfir þróun orkumála á Íslandi, allt frá upphafi rafvæðingar til dagsins í dag og horft er til framtíðar með hliðsjón af þeim áskorunum og tækifærum sem blasa við.


Greining Íslandsbanka gefur út skýrslu um þróun orkumála á Íslandi. Í skýrslunni er farið yfir upphaf rafvæðingar til dagsins í dag og horft er til framtíðar með hliðsjón af þeim áskorunum og tækifærum sem blasa við. Sérstök áhersla er lögð á efnahagslega þýðingu orkuskipta, áhrif þeirra á útflutning, fjárfestingar og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Á síðustu áratugum hefur Ísland gengið í gegnum róttækar og djúpstæðar breytingar í orkumálum, sem hafa haft víðtæk áhrif á samfélagið, atvinnulífið og efnahagslega stöðu þjóðarinnar. Frá því að vera samfélag þar sem kol og mór voru helstu orkugjafarnir hefur Ísland þróast yfir í að vera eitt fremsta land heims í nýtingu endurnýjanlegrar orku.

Skýrslan byggir á nýjustu gögnum, opinberum spám og greiningum, auk þess sem dregin eru fram helstu stefnumótandi atriði sem skipta máli fyrir áframhaldandi vöxt og velferð þjóðarinnar.

Póstlisti Greiningar

Ekki missa af greiningum okkar á því helsta sem snertir efnahagslífið og skráðu þig á póstlistann okkar!

Höfundur skýrslu


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband