Íslandsbanki hefur tekið í notkun nýjan hraðbanka í Mosfellsbæ. Tækið er staðsett í anddyri Nettó við Sunnukrika 3 og er opið á opnunartíma verslunarinnar, frá kl. 7:30 til miðnættis alla daga vikunnar.
Með tilkomu hans er aðgengi viðskiptavina að reiðufjárþjónustu á svæðinu aftur tryggt, eftir að hraðbanki bankans í Þverholti var fjarlægður í kjölfar þjófnaðar í ágúst á síðasta ári.
Nýja staðsetningin er talin tryggja bæði gott aðgengi og aukið öryggi fyrir viðskiptavini.
Með þessari viðbót styrkir Íslandsbanki þjónustu sína í Mosfellsbæ og mætir áfram þörfum viðskiptavina fyrir aðgengilegum og öruggum lausnum.
