Íslandsbanki og miðillinn UTAN VALLAR hafa gefið út nýja skýrslu um fjármál heimsmeistaramótsins í knattspyrnu 2026. Í skýrslunni er farið yfir helstu tekju- og útgjaldaliði mótsins, þróun þeirra á undanförnum árum og efnahagsleg áhrif mótsins á heimsvísu.
Ný skýrsla um fjármál HM
Miðasölutekjur hafa hækkað um rúmlega 200% milli tímabila.
Helstu niðurstöður
Tekjur FIFA á tímabilinu 2023–2026 eru áætlaðar rúmlega 1.600 milljarðar króna, sem er um 70% aukning frá fyrra tímabili.
Miðasölutekjur hafa hækkað um rúmlega 200% milli tímabila.
Útgjöld FIFA hafa rúmlega tvöfaldast og eru áætluð um 1.609 milljarðar króna á sama tímabili.
Útgjöld vegna HM 2026 nema um 468 milljörðum króna og hafa tvöfaldast frá síðasta móti.
Ódýrasti miði á úrslitaleik HM 2026 er um tífalt dýrari en á HM 2022.
Efnahagsleg áhrif mótsins eru metin tæplega 10.000 milljarða króna á heimsvísu.
