Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 5.920 m.kr.


Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,93%. Heildartilboð voru 680 m.kr. á bilinu 4,90% - 5,10%. Heildarstærð flokksins verður 2.740 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 1.580 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,97%. Heildartilboð voru 1.580 m.kr. á bilinu 4,89% - 4,97%. Heildarstærð flokksins verður 14.580 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 2.220 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,00%. Heildartilboð voru 3.660 m.kr. á bilinu 1,94% - 2,04%. Heildarstærð flokksins verður 10.320 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. apríl næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.