Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Heildareftirspurn í útboðinu var 2.580 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,60%. Heildartilboð voru 700 m.kr. á bilinu 4,59% -4,64%. Heildarstærð flokksins verður 4.560 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 100 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,65%. Heildartilboð voru 540 m.kr. á bilinu 4,65% - 4,70%. Heildarstærð flokksins verður 19.480 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,61%. Heildartilboð voru 1.340 m.kr. á bilinu 1,55% - 1,66%. Heildarstærð flokksins verður 13.360 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 23. júlí næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:


Gunnar S. Magnússon

Fjárfestatengsl


Senda póst
440 4665