Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa 15. ágúst

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.140 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 100 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,50%. Heildartilboð voru 300 m.kr. á bilinu 4,50% -4,54%. Heildarstærð flokksins verður 4.660 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,53%. Heildartilboð voru 1.120 m.kr. á bilinu 4,51% - 4,56%. Heildarstærð flokksins verður 20.400 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 1.680 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,72%. Heildartilboð voru 2.720 m.kr. á bilinu 1,69% - 1,76%. Heildarstærð flokksins verður 15.040 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 22. ágúst næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:


Gunnar S. Magnússon

Fjárfestatengsl


Senda póst
440 4665