Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Heildareftirspurn í útboðinu var 5.840 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 260 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,72%. Heildartilboð voru 560 m.kr. á bilinu 4,66% - 4,90%. Heildarstærð flokksins verður 3.000 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 2.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,77%. Heildartilboð voru 2.320 m.kr. á bilinu 4,70% - 4,77%. Heildarstærð flokksins verður 16.900 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 1.860 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,82%. Heildartilboð voru 2.960 m.kr. á bilinu 1,73% - 1,88%. Heildarstærð flokksins verður 12.180 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. maí næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:


Gunnar S. Magnússon

Fjárfestatengsl


Senda póst
440 4665