Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.000 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,08%. Heildartilboð voru 2.000 m.kr. á bilinu 6,00% - 6,08%. Heildarstærð flokksins verður 11.680 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 27. desember næstkomandi.

Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Íslandsbanki til baka 180 m.kr. af ISLA CB 19 á fyrirframákveðna verðinu 100,5258 gegn sölu á CB 23.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 130.100 m.kr.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.