Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa 13. júní

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Heildareftirspurn í útboðinu var 3.080 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,52%. Heildartilboð voru 200 m.kr. á bilinu 4,50% -4,52%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalána til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 4.160 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 2.480 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,66%. Heildartilboð voru 2.880 m.kr. á bilinu 4,60% - 4,67%. Heildarstærð flokksins verður 19.380 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 20. júní næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir:


Gunnar S. Magnússon

Fjárfestatengsl


Senda póst
4404665