Athugið

Þessi grein er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Marvel slær öll met 

Tekjur af miðasölu Avengers: Endgame námu um 1,2 milljörðum dollara um frumsýningarhelgina og er um að ræða langstærstu opnunarhelgi kvikmyndasögunnar.


Eins og milljarðamæringurinn sérvitri Tony Stark sagði eitt sinn skiptir ekki máli hversu ríkur þú ert, þú getur ekki keypt þér tíma. Vinnuveitendur Starks hjá Disney vita þó að við erum mörg tilbúin að verja sparifénu okkar í að dvelja í nokkrar klukkustundir í hinum ýmsu heimum sem finna má í kvikmyndum og þáttum fjölmiðlaveldisins, til dæmis að verja þremur klukkustundum á nýju Avengers-myndinni.

Tekjur af miðasölu Avengers: Endgame námu um 1,2 milljörðum dollara um frumsýningarhelgina og er um að ræða langstærstu opnunarhelgi kvikmyndasögunnar. Hetjur og skúrka myndarinnar eignaðist Disney með fjögurra milljarða dollara kaupunum á Marvel- myndasöguútgefandanum áramótin 2009-2010 en einhvern tíma til viðbótar tók þó Disney að hefja framleiðslu kvikmynda þar sem áður hafði verið samið við samkeppnisaðila þeirra um umsjón með hinum ýmsu vörumerkjum og persónum.

Frá gerð fyrstu Avengers-kvikmyndarinnar árið 2012 hefur Disney nú sent frá sér 16 myndir sem byggja á persónum Marvel. Framleiðslukostnaður þeirra nemur um 3,3 milljörðum dollara en miðasala hefur skilað 16,7 milljörðum í tekjur. Það er snúið að áætla hagnað hverrar myndar fyrir sig, enda taka bíóhúsin sinn skerf af miðasölu og við framleiðslukostnað bætist til dæmis dreifingar- og markaðskostnaður. Við vitum þó að á liðnu ári nam hagnaður Disney af framleiðslu tíu kvikmynda þremur milljörðum dollara og gerðust þrjár þeirra í ævintýraheimi Marvel. Þegar litið er sérstaklega á miðasölutekjur og framleiðslukostnað þeirra mynda, í samanburði við aðrar Disney-myndir, má áætla að stór hluti hagnaðarins hafi verið vegna Aveng­ers: Infinity War, Black Panther og Ant-Man 2.

Hjá Disney hafa forstjórinn Bob Iger og hans fólk áttað sig á verðmæti stórra ævintýramynda. Kaupin á Pixar fyrir 7,4 milljarða dollara árið 2006 og Star Wars á fjóra milljarða 2012 hafa reynst afar arðbær og það efast enginn í dag um að kaupin á Marvel borguðu sig.

Undanfarin níu ár hefur það aðeins gerst tvisvar að tekjuhæsta kvikmynd ársins var ekki framleidd af Disney. Með yfirtökunni á kvikmyndaverinu 20th Century Fox sem lauk nú nýverið aukast yfirburðirnir enn frekar og með streymisveitunni Disney +, sem fer í loftið með haustinu, freistar fyrirtækið þess að dreifa sínu eigin efni og halda enn stærri hluta virðiskeðjunnar en áður. Disney rétt smellir fingrum og samkeppnin fuðrar upp.

Greinin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál

Höfundur


Björn Berg Gunnarsson

Deildarstjóri greiningar og fræðslu


Senda tölvupóst