Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Lokun fyrir veðmálasíður á greiðslukortum barna og unglinga


Á næstu dögum munum við loka fyrir að einstaklingar yngri en 18 ára geti notað greiðslukort til að stunda fjárhættuspil á netinu.

Samkvæmt íslenskum lögum er einstaklingum undir 18 ára óheimilt að taka þátt í fjárhættuspilum. Með þessari aðgerð viljum við styðja við það markmið og draga úr aðgengi barna og unglinga að slíkri starfsemi. Rannsóknir sýna að ungt fólk er sérlega næmt fyrir auglýsingum og markaðssetningu fjárhættuspila og því teljum við mikilvægt að grípa til aðgerða.

Lokunin á við um öll viðskipti við söluaðila sem eru rétt skráðir sem veðmálafyrirtæki eða fjárhættuspilasíður. Í undantekningartilvikum gætu færslur farið í gegn ef söluaðili hefur ekki skráð starfsemi sína rétt.

Ef þú hefur spurningar eða vilt fá frekari upplýsingar, erum við til staðar í gegnum netspjall á islandsbanki.is eða í síma 440-4000.