Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Leiðrétting: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði - Tilkynning birt 2016-01-11 17:33 CET

Leiðrétting: Í tilkynningu þeirri sem birtist sl. föstudag var röng upphæð gefin upp í víxlaflokki ISLA 16 0520.


Leiðrétting: Í tilkynningu þeirri sem birtist sl. föstudag var röng upphæð gefin upp í víxlaflokki ISLA 16 0520. Tilkynnt var að 380 m.kr. hefðu verið seldar í flokknum en rétt upphæð er 680 m.kr. Upplýsingarnar hafa verið leiðréttar í eftirfarandi texta:

Íslandsbanki hf. lauk á föstudag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 1,42 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,72 ma. kr.

Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0520 að nafnvirði 680 m.kr. á 6,44% flötum vöxtum (verð 97,7957). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0616 seldust að nafnvirði 380 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,3158) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 seldust að nafnvirði 360 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,7170).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 10,2 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. janúar næstkomandi.