Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Leiðrétting: Íslandsbanki hf.: Niðurstaða úr skilyrtu endurkaupatilboði

Leiðrétting á frétt sem birt var 09:42 13.12.2017 GMT. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða og samþykktarhlutfall (pro rata scaling factor) var leiðrétt frá fyrri frétt.


Leiðrétting á frétt sem birt var 09:42 13.12.2017 GMT. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða og samþykktarhlutfall (pro rata scaling factor) var leiðrétt frá fyrri frétt. 

Íslandsbanki hefur í dag tilkynnt niðurstöðu úr skilyrtu endurkaupatilboði til eigenda á EUR 300.000.000 2,875% skuldabréfaútgáfu á gjalddaga 27. júlí 2018 (ISIN XS1266140984) sem tilkynnt var um 5. desember 2017 þar sem bankinn bauðst til að kaupa skuldabréfin til baka gegn greiðslu reiðufjár. Tilboðið var háð þeim skilmálum og skilyrðum sem lýst var í endurkaupatilboði (e. Tender Offer Memorandum) dagsettu 5. desember 2017.

Bankanum bárust gild tilboð að fjárhæð EUR 158.160.000 og samþykkti tilboð að upphæð EUR 150.000.000. Samþykktarhlutfall (pro rata scaling factor) er 96.4858%.

Nánari upplýsingar um niðurstöðu endurkaupatilboðsins er að finna í tilkynningu sem birt var í írsku kauphöllinni (www.ise.ie) þar sem skuldabréfið er skráð.