Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækja og fjárfesta, er handhafi Stjórnendaverðlauna Gallup 2026, sem veitt voru í annað sinn á dögunum. Verðlaunin eru veitt þeim stjórnendum sem hafa sýnt framúrskarandi árangur, sérstaklega hvað varðar helgun starfsfólks, stjórnunarhætti og rekstrarárangur.
Kristín Hrönn hlýtur Stjórnendaverðlaun Gallup 2026
Kristín Hrönn Guðmundsdóttir er í hópi fimm stjórnenda sem hljóta Stjórnendaverðlaun Gallup 2026.
Þessi viðurkenning kom mér skemmtilega á óvart. Ég trúi því að gott starfsfólk laði að sér fleira gott fólk sem endurspeglist svo í árangri. Helgun starfsfólks og starfsánægja skiptir því miklu máli á stórum og líflegum vinnustað eins og hjá okkur í Íslandsbanka, þar sem starfsfólk þarf að geta brugðist hratt við fjölbreyttum áskorunum.
Í tilnefningunni segir meðal annars:
„Við teljum Kristínu Hrönn vera einstakan stjórnanda sem hefur sýnt að árangursrík forysta felst í styrk, heiðarleika, samheldni og getu til að leiða teymi í gegnum áskoranir með yfirvegun og skýrri framtíðarsýn. Hún er meðal áhrifamestu kvenna innan íslenska bankageirans í dag og hefur með stöðu sinni, sýnileika og þátttöku haft áhrif á jafnrétti innan fjármálageirans.“
