Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Kass kvatt

Kass lokar 30. apríl 2024.


Eftir átta ánægjuleg og lærdómsrík ár hefur nú verið ákveðið að loka Kass. Appið var fyrst tekið í notkun í byrjun árs 2016, en það er í eigu Íslandsbanka og þróað í samstarfi við Memento.

Kass fékk íslensku vefverðlaunin, sem Samtök vefiðnaðarins standa fyrir, sem besta appið 2016 og hefur haft mikil áhrif á notkun greiðslutækja á Íslandi. Umhverfi fjártækni og greiðslulausna er hins vegar síkvikt og breytingar örar. Mikil þróun hefur átt sér stað í appi Íslandsbanka og mun sú þróun halda áfram og taka mið af þörfum viðskiptavina.

Íslandsbanki fylgist jafnframt náið með þeirri miklu og hröðu þróun sem á sér stað á sviði tæknilausna í fjármálaþjónustu og leggur ríka áherslu á samstarf og stuðning við verkefni sem koma muni viðskiptavinum bankans til góða.