Íslandsbanki og IceBAN, félag íslenskra englafjárfesta, hafa undirritað samstarfssamning þar sem Íslandsbanki tekur við hlutverki lykilsamstarfsaðila IceBAN.
Markmið samstarfsins er að efla englafjárfestingar á Íslandi, styðja faglegt samfélag fjárfesta og stuðla að því að meira einkafjármagn, reynsla og þekking verði aðgengileg nýjum og vaxandi fyrirtækjum á fyrstu stigum. Íslandsbanki mun meðal annars leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar tengslanetsins, fræðslu og viðburða fyrir englafjárfesta og markvissari tenginga milli fjárfesta og sprotafyrirtækja.
Mikilvæg fyrstu skref í fjármögnun
Englafjárfestar gegna mikilvægu hlutverki í fyrstu fjármögnun nýrra fyrirtækja. Á þeim tíma eru félög oft ekki komin á það stig að hefðbundin lánsfjármögnun eða stærri fjárfestingarsjóðir eigi við. Einstaklingar sem fjárfesta með eigin fé geta þá lagt til fjármagn, reynslu og tengsl og stutt félög til að ná þeim áföngum sem þarf áður en næsta stig fjármögnunar tekur við.
Samstarfið fellur vel að áherslum Atvinnustefnu Íslands, Vaxtarplans til 2035, þar sem bættur aðgangur að fjármagni er meðal þeirra þátta sem eiga að styðja við nýsköpun, verðmætasköpun og fjölbreyttari útflutning.
„Við höfum verið samstarfsaðili IceBAN frá stofnun þess árið 2024 en tökum nú stærra hlutverk sem lykilsamstarfsaðili. Það er ánægjulegt að geta með þessum hætti lagt okkar af mörkum til að efla englafjárfestingar og frumkvöðlastarf hér á landi. IceBAN hefur á skömmum tíma byggt upp öflugan vettvang sem tengir saman fjárfesta og ný fyrirtæki og við hlökkum til að taka enn virkari þátt í þeirri uppbyggingu,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
„Englafjárfestar gegna lykilhlutverki á fyrstu stigum fyrirtækja, bæði með fjármagni og þeirri reynslu og tengslum sem þeir geta lagt til. Á innan við tveimur árum hafa um 150 fyrirtæki sent inn kynningar til IceBAN og 19 fyrirtæki hafa lokið fjármögnun eftir kynningu hjá okkur. Það sýnir að þörfin fyrir þennan vettvang er raunveruleg. Ef nýsköpun á að verða enn sterkari drifkraftur verðmætasköpunar á Íslandi þurfum við að virkja meira einkafjármagn á fyrstu stigum og byggja upp öflugt samfélag fjárfesta í kringum það. Samstarfið við Íslandsbanka styrkir okkur í þeirri vegferð,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri IceBAN.
IceBAN var stofnað í maí 2024 til að byggja upp faglegt tengslanet englafjárfesta á Íslandi og auðvelda þeim að finna, ræða og meta fjárfestingartækifæri í sprotafyrirtækjum. Síðan þá hafa yfir 40 englafjárfestar gengið til liðs við tengslanetið og fer þeim jafnt og þétt fjölgandi. Starfið byggir á þeirri einföldu hugmynd að sterk tengsl milli fjárfesta, meiri þekking og markvissari aðgangur að fjárfestingartækifærum skapi meiri fagmennsku og betri umgjörð um englafjárfestingar á Íslandi.
