Við höfum fengið tilkynningar um svikatilraunir þar sem einstaklingar hringja í viðskiptavini og gefa sig út fyrir að vera starfsmenn Íslandsbanka. Hringjandi segist hafa greint grunsamlega virkni eða innskráningu í netbanka og biður viðskiptavin um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.
Við hvetjum viðskiptavini til að hafna slíkum beiðnum ef þær berast óvænt. Ef þú ert í vafa skaltu slíta símtalinu og hafa samband við Íslandsbanka í síma 440-4000.
Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?
Ef þú telur þig hafa lent í svikum og heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum, gafst upp öryggisnúmer, þá þarft þú að gera eftirfarandi:
- Frysta öll greiðslukort í appinu, jafnvel þó að þú hafir ekki gefið upp greiðslukortanúmerið.
- Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
- Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.
