Íslandsbanki varar við svikatölvupóstum í nafni bankans

Við vörum við svikatölvupóstum í nafni bankans sem hafa verið að berast viðskiptavinum


Um er að ræða mjög sannfærandi svikatölvupóst í nafni bankans sem biður viðtakanda, öryggisins vegna, um að staðfesta banka- og reikningsupplýsingar til að aflétta takmörkunum á reikningum.

Tilgangur svikanna er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar með því að veiða innskráningu með rafrænum skilríkjum og öryggisnúmer viðtakanda.

Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?

Ef þú telur þig hafa lent í svikum og heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum, gafst upp öryggisnúmer, þá þarft þú að gera eftirfarandi:      

  • Frysta öll greiðslukort í appinu, jafnvel þó að þú hafir ekki gefið upp greiðslukortanúmerið.
  • Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
  • Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.

Að neðan má sjá mynd af sviksamlegum tölvupósti, í nafni Íslandsbanka, sem hefur verið í dreifingu og sviksamlegu vefsíðunni sem hann beinir fólki inn á.

Íslandsbanki bendir viðskiptavinum á að senda sviksamlega tölvupósta sem þeim berast á svikavaktISB@islandsbanki.is. Slíkt gerir bankanum kleift að bregðast við og tilkynna sviksamlegu veflénin til CERT-IS og fjarskiptafyrirtækjanna. Þá áréttar bankinn að mikilvægt er að tilkynna þau mál sem upp koma til lögreglu og þíns viðskiptabanka. Hægt er að tilkynna fjársvik til lögreglunnar í síma 444-1000 eða með því að fylla út tilkynningu.