Svikatölvupósturinn hefur titilinn „Mikilvægt: Uppfæra þarf upplýsingar“ og biður viðtakanda að uppfæra upplýsingar sínar hjá bankanum innan 7 daga til að forðast truflun á þjónustu. Tilgangurinn er að biðja móttakanda póstsins að láta af hendi banka-og kortaupplýsingar.
Hvernig veistu að þetta séu svik?
- Íslandsbanki sendir bara tölvupósta frá netföngum sem enda á: islandsbanki.is, isb.is, ergo.is, islandssjodir.is og það sama gildir um hlekkina sem við sendum frá okkur.
Telur þú þig hafa lent í svikum?
Ef þú gafst upp greiðslukortið þitt eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum í gegnum hlekk þá þarft þú að:
- Frysta greiðslukortin þín í appinu
- Skrá út öll innskráð tæki. Það getur þú gert í appinu með því að ýta á „Meira“, velja síðan tannhjólið fyrir „Stillingar“ efst í hægra horninu og þar velurðu „Skrá út úr öllum tækjum“.
- Hafðu tafarlaust samband við Íslandsbanka í síma 440-4000 sem er opinn allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.
Nánari upplýsingar má finna á netöryggissíðu Íslandsbanka.