Svikaskilaboð í nafni Íslandsbanka eru í umferð. Ekki bregðast við skilaboðum þar sem óskað er eftir að þú hringir í símanúmer til að endurvirkja greiðslukort. Hafðu samband við okkur í síma 440-4000 ef þú ert í vafa.

Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?
Ef þú lentir í svikum og gafst upp greiðslukortið þitt og aðrar bankaupplýsingar eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þá skaltu gera eftirfarandi:
- Frysta öll greiðslukort í appinu.
- Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
- Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.
