Svikaskilaboðin tilkynna viðtakanda að grunsamleg innskráningartilraun hafi verið greind og biður viðtakanda að skrá sig inn til að staðfesta upplýsingarnar sínar hjá Íslandsbanka. Tilgangurinn er að biðja móttakanda skilaboðanna að láta af hendi banka- og kortaupplýsingar.
Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?
Ef þú lentir í svikum og gafst upp greiðslukortið þitt og aðrar bankaupplýsingar eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þá skaltu gera eftirfarandi:
- Frysta öll greiðslukort í appinu.
- Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
- Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.

