Íslandsbanki varar við svikaskilaboðum í nafni bank­ans

Við vörum við svikaskilaboðum í nafni bankans sem hafa verið að berast viðskiptavinum.


Svikaskilaboðin tilkynna viðtakanda að vegna grunsamlegrar virkni á reikningi þeirra sé þörf á að skrá sig inn til að staðfesta auðkenni sitt hjá bankanum. Tilgangurinn er að biðja móttakanda skilaboðanna að láta af hendi banka- og kortaupplýsingar.

Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?

Ef þú lentir í svikum og gafst upp greiðslukortið þitt og aðrar bankaupplýsingar eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þá skaltu gera eftirfarandi:

  • Frysta öll greiðslukort í appinu.
  • Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
  • Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.