Verðbréfamiðlun Íslandsbanka var með hæstu hlutdeild í viðskiptum hlutabréfa á aðalmarkaði Kauphallarinnar á árinu 2025, eða 22,3%. Næsti aðili á eftir Íslandsbanka var með 16,3% hlutdeild. Þetta kemur fram í samantekt sem Nasdaq birti í gær á hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði fyrir árið 2025.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka átti einnig gott ár á skuldabréfamarkaði þar sem bankinn var með næst hæstu hlutdeild á skuldabréfamarkaði, eða 20,7%. Þá liggur fyrir að bankinn var samanlagt með hæstu hlutdeild í viðskiptum með verðbréf á árinu.

