Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki og UN Women á Íslandi undirrita samstarfssamning

UN Women á Íslandi og Íslandsbanki undirrituðu nýverið samstarfssamning til tveggja ára. Með samstarfssamningnum er Íslandsbanki aðalsamstarfsaðili UN Women á Íslandi á sviði bankaþjónustu, auk þess að vera sérstakur bakhjarl ljósbera UN Women. Hér á landi eru rúmlega níu þúsund ljósberar, sem styðja við starf UN Women með mánaðarlegum framlögum.


Samstarfið við Íslandsbanka gerir UN Women á Íslandi kleift að nýta söfnunarfé samtakanna enn betur í þágu aukinna réttinda og bættum hag kvenna og stúlkna um allan heim. Íslandsbanki hefur skilgreint hlutverk sitt að vera hreyfiafl til góðra verka og vinnur bankinn að fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Eitt af þeim markmiðum er jafnrétti og munu Íslandsbanki og UN Women vinna saman að verkefnum sem stuðla að því heimsmarkmiði

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanki undirrituðu samninginn á dögunum.