Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki og Landsbankinn gera með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum

Íslandsbanki hf. og Landsbankinn hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum Íslandsbanka á Nasdaq Iceland.


Íslandsbanki hf. og Landsbankinn hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum Íslandsbanka á Nasdaq Iceland.

Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.

Landsbankinn mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin fyrir opnun markaða. Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða vera 60 m.kr. en 80 m.kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvirði. Fyrir aðra flokka skal lágmarksfjárhæð tilboða 20 m.kr. Skuldabréfaflokkarnir ISLA CB 19, ISLA CB 23, ISLA CBI 22 og ISLA CBI 26 eru markflokkar.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu. Miða skal við árafjölda til gjalddaga. Á gildistíma samnings skal hámarksmunur kaup og sölutilboða breytast í samræmi við tíma sem eftir er til gjalddaga sbr. neðangreinda töflu.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankanum er skylt að eiga með skuldabréfaflokka sem falla undir þennan samning hvern dag á samningstímanum skal vera samtals 500 milljónir króna að nafnvirði samanlagt í öllum skuldabréfaflokkum.

Íslandsbanki mun veita Landsbankanum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán til Landsbankans í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka.