Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki breytir vöxtum

Íslandsbanki mun þann 23. október næstkomandi breyta vöxtum á inn- og útlánum.


Rétt er að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak. 

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 0,50 prósentustig. 
  • Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,35 prósentustig.
  • Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,75 prósentustig.
  • Breytilegir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.  
  • Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,80 prósentustig.
  • Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,80 prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.