Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á vöxtum Íslandsbanka

Íslandsbanki mun þann 19. maí breyta vöxtum í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 4. maí þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 1,0 prósentustig. Vaxtabreyting hjá Ergo tekur gildi 20. maí.


  • Vextir á óverðtryggðum innlánareikningum hækka um allt að 1,0 prósentustig. Almennir veltureikningar hækka um 0,10 prósentustig. 
  • Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,90 prósentustig og fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,15 prósentustig. Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 1,0 prósentustig. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,70% og fastir vextir óverðtryggra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,30 prósentustig. 
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,70 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,70 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 1,0 prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.