Íslandsbanki breytir vöxtum

Íslandsbanki lækkar vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum og tekur ný vaxtatafla gildi í dag, þann 17. júlí 2026.


Íslandsbanki lækkar vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum og tekur ný vaxtatafla gildi í dag, þann 17. júlí 2026.

  • Óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til 3ja ára lækka um 0,10 prósentustig í 8,75%.
  • Óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til 5 ára lækka um 0,30 prósentustig í 8,45%.
  • Fljótandi vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum lækka um 0,10 prósentustig í 9,25% (gildir einungis um ný lán).

Breytingar sem falla undir lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.