Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 1.060 m. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0212 að nafnvirði 560 m. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,4849) og í flokki ISLA 16 0321 að nafnvirði 500 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8184).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 3,2 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.940 m. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. september næstkomandi, með auðkennunum ISLA 16 0212 og ISLA 16 0321.