Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 1,62 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,56 ma. kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 1,62 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,56 ma. kr.

Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0520 að nafnvirði 760 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 97,4830) og í flokki ISLA 16 0616 að nafnvirði 860 m.kr. á 6,55% flötum vöxtum (verð 96,9997).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 9,5 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 29. desember næstkomandi.