Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum. Að þessu sinni var öllum tilboðum hafnað í sértryggða skuldabréfaflokknum ISLA CBI 22.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum. Að þessu sinni var öllum tilboðum hafnað í sértryggða skuldabréfaflokknum ISLA CBI 22.

Seldir víxlar í 3ja mánaða flokkinn ISLA 16 0721 voru að nafnvirði 1,74 ma. kr. á 6,41% flötum vöxtum (verð 98,3022) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 1012 seldust að nafnvirði 1,36 ma. kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8523). Heildareftirspurn var 5,72 ma. kr. en 54% tilboða var tekið.

Í kjölfar skráningar útboðsins mun heildarupphæð útistandandi víxla Íslandsbanka verða 10,64 ma. kr.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. apríl næstkomandi en þá eru 4,44 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0415.