Íslandsbanki kynnir nýja vildarþjónustu sem kemur viðskiptavinum á toppinn

Íslandsbanki hefur hleypt af stokkunum nýrri vildarþjónustu sem veitir viðskiptavinum bankans betri kjör og aukin fríðindi. Með vildarþjónustunni er viðskiptavinum umbunað fyrir heildstæð bankaviðskipti, á sama tíma og bankinn styður markvisst við sparnað og bætta fjárhagslega heilsu þeirra.


Vildarþjónustan byggir á skýru og einföldu kerfi þar sem viðskiptavinir safna stigum fyrir vörur og þjónustu sem þeir nýta hjá bankanum.  Eftir því sem stigum fjölgar færast þeir á milli skrefa og fá aðgang að betri kjörum og fríðindum, meðal annars í sparnaði, lánakjörum og annarri bankaþjónustu. 

Heiti skrefanna eru sótt í íslenska náttúru – Klettur, Fjall, Drangi, Jökull og Tindur. Viðskiptavinir feta sig áfram í kerfinu með því að safna stigum fyrir þær vörur og þjónustur sem þeir nýta hjá bankanum, og ná þannig nýjum toppum.

Ýmsar vörur og þjónustur Íslandsbanka telja til stiga í vildarþjónustunni og lögð er áhersla á að viðskiptavinir hafi skýra yfirsýn yfir það í hvaða skrefi þeir eru, hvaða vörur og þjónustur gefa stig og hvernig þeir geta fært sig ofar. 

Stig fást meðal annars fyrir reglubundin bankaviðskipti, svo sem notkun debet- og kreditkorta, sparnaði í sjóðum, reglulegum framlögum í séreignarsparnað og öðrum sparnaðarleiðum. Þá gefa ákveðin lánaviðskipti og heimilistrygging hjá VÍS einnig stig.

Með vildarþjónustunni vill Íslandsbanki einnig dýpka persónulega þjónustu við viðskiptavini sína og munu þeir sem ná efstu skrefum þjónustunnar meðal annars fá sinn eigin tengilið innan bankans.

Samhliða Vildarþjónustunni kynnir Íslandsbanki ný húsnæðislán á fljótandi vöxtum sem eru tengdir við stýrivexti Seðlabankans og nýjan sparnaðarreikning, Vildarsparnað, sem ber stighækkandi vexti eftir skrefum í vildarþjónustunni.

Vildarþjónustan er nú þegar í boði fyrir alla viðskiptavini 18 ára og eldri og á næstu dögum verður sérstök þjónusta fyrir 13-17 ára einnig aðgengileg í appinu sem er liður í þeirri stefnu Íslandsbanka að einfalda bankaviðskipti, auka gagnsæi og styðja við ábyrg fjármál einstaklinga og heimila.

Nánari upplýsingar um vildarþjónustu Íslandsbanka má finna á vef bankans og í appi Íslandsbanka.

Með vildarþjónustunni viljum við sýna viðskiptavinum okkar raunverulegan ávinning af því að vera í fjölbreyttum viðskiptum við Íslandsbanka. Um leið leggjum við ríka áherslu á að efla fjárhagslega heilsu þeirra, hvetjum til sparnaðar og markmiðasetningar og veitum betri yfirsýn yfir fjármálin.

Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka

Við hjá Íslandsbanka leggjum metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og það er því afar gleðilegt að geta boðið upp á þessa heildrænu nálgun í bankaviðskiptum. Með innleiðingu vildarþjónustunnar höfum við jafnframt gert stafrænar lausnir okkar enn betri sem gera viðskiptavinum kleift að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál sín.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka