Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 21. mars

Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 21. mars 2018.


Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 21. mars 2018.

Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. mars 2018.
Athugið að gegn samþykktum tilboðum í framangreinda flokka, ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30, verður hægt að greiða með ISLA CBI 19. Íslandsbanki mun þá kaupa

ISLA CBI 19 á fyrirframákveðnu verði, þ.e. hreina verðinu 100,00 sem jafngildir ávöxtunarkröfunni 2,86%. Andvirði ISLA CBI 19 ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla upp í kaup á nýju bréfunum útgefnum 28. mars 2018. Uppgjör viðskipta fer fram 28. mars 2018.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 21. mars.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.