Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 14. júní

Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 14. júní 2017


Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 14. júní 2017. Um breytta dagsetningu er að ræða frá áður auglýstri útgáfuáætlun.

Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 22 og ISLA CBI 30. Stefnt verður að skráningu þeirra í Kauphöll 20. júní.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is.