Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.740 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.800 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.800 m.kr. á 4,33% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.400 m.kr. á bilinu 4,28% - 4,35%.

Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 340 m.kr. á bilinu 4,54%-4,70%. Öll tilboð voru afþökkuð.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 10. apríl.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.