Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.860 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.860 m.kr.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,33%. Heildartilboð voru 200 m.kr. á bilinu 5,28% - 5,37%. Heildarstærð flokksins verður 9.520 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 1.420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildartilboð voru 1.420 m.kr. á bilinu 3,20% - 3,25%. Heildarstærð flokksins verður 8.260 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 240 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 240 m.kr. á bilinu 3,00% - 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 19.880 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. febrúar næstkomandi.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 67.780 m.kr.