Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.560 m.kr.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 580 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,56%. Heildartilboð voru 880 m.kr. á bilinu 5,51% - 5,58%. Heildarstærð flokksins verður 9.360 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildartilboð voru 540 m.kr. á bilinu 3,21% - 3,25%. Heildarstærð flokksins verður 6.840 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 140 m.kr. á 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 19.640 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 31. janúar næstkomandi.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 65.960 m.kr.