Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 8.320 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 8.320 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 5.040 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,51%. Heildartilboð voru 5.040 m.kr. á bilinu 2,44% - 2,51%. Að auki gefur Íslandsbanki út 1.000 m.kr. til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 29.940 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 880 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,71%. Heildartilboð voru 900 m.kr. á bilinu 2,65% - 2,73%. Að auki gefur Íslandsbanki út 1.000 m.kr. til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 6.380 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 2.380 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,61%. Heildartilboð voru 2.380 m.kr. á bilinu 0,49% - 0,61%. Heildarstærð flokksins verður 28.620 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. desember 2020.

Nánari upplýsingar:


Profile card

Fjárfestatengsl


Senda póst