Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Fitch staðfestir lánshæfismat í BBB með stöðugum horfum

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur í dag staðfest lánshæfismat Íslandsbanka í BBB/F3 með stöðugum horfum. Fitch vísar í mati sínu til sterkrar stöðu Íslandsbanka á innlendum markaði þar sem bankinn hefur um 30% hlutdeild


Auk þess sem eignasafn bankans er sagt traust, fjármögnun hans stöðug og lausa- og eiginfjárhlutföll há. Áframhaldandi áhersla Íslandsbanka á innlendan markað ásamt traustum ramma um áhættustýringu mun að mati Fitch halda áfram að styrkja eignahlið efnahagsreiknings bankans en vanskilahlutfall lána hjá bankanum hefur lækkað stöðugt frá árinu 2010.