Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: fær lánshæfismat frá Fitch; BBB-/F3 með stöðugum horfum

Lánshæfismat Íslandsbanka endurspeglar sterka stöðu á innlendum markaði og góða eiginfjárstöðu bankans. Þetta kemur fram í lánshæfismati fyrir Íslandsbanka sem Fitch birti í dag. Fitch gefur Íslandsbanka lánshæfismatseinkunnina BBB-/F3 með stöðugum horfum sem er góð niðurstaða þegar horft til þess að Íslandsbanki er fyrstur banka á Íslandi frá árinu 2008 til að komast í fjárfestingarflokk.


Lánshæfismat Íslandsbanka endurspeglar sterka stöðu á innlendum markaði og góða eiginfjárstöðu bankans. Þetta kemur fram í lánshæfismati fyrir Íslandsbanka sem Fitch birti í dag.

Fitch gefur Íslandsbanka lánshæfismatseinkunnina BBB-/F3 með stöðugum horfum sem er góð niðurstaða þegar horft til þess að Íslandsbanki er fyrstur banka á Íslandi frá árinu 2008 til að komast í fjárfestingarflokk. 

Í lánshæfismati Fitch kemur fram að endurskipulagning stórs hluta lánasafnsins frá árinu 2008 er lokið og að bankinn hafi verið varfærinn í mati á greiðslugetu viðskiptavina niðurfærðra lána.

Að áliti Fitch er hætta á umtalsverðu gjaldeyrisútflæði við afléttingu gjaldeyrishafta og það valdi óvissu fyrir allt fjármálakerfið en Fitch telur Íslandsbanka vel í stakk búinn til að stýra gjaldeyrisjöfnuði sínum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: 

„Við erum mjög stolt af því að Íslandsbanki, fyrstur banka á Íslandi frá árinu 2008, sé nú kominn í Fjárfestingarflokk. Þetta mun auka aðgengi okkar að fjármögnun bæði hér á landi en ekki síst erlendis. Þessi breyting felur í sér að mun fleiri fjárfestar geta nú keypt skuldabréf bankans sem getur svo haft áhrif á bæði eftirspurn og verðlagningu bréfanna. Með betri kjörum erlendis getur bankinn stutt enn betur við viðskiptavini okkar sem þarfnast erlendrar fjármögnunar. Þetta er uppskera mikillar og góðrar vinnu starfsfólks bankans sem hefur miðað að því að byggja upp framúrskarandi fyrirtæki sem eftir er tekið.“