Símafundur með fjárfestum á ensku
Markaðsaðilum er boðið upp á símafund kl. 9.30 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.
Afkomufundur á íslensku
Síðar þann dag kl. 11.30 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.
Skráning á fundinn fer fram á vef fjárfestatengsla og þar er jafnframt að finna allar upplýsingar tengdar uppgjörinu www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.
Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl